Fagleg fjármálastjórn
Auðborg veitir fyrirtækjum ráðgjöf um rekstur og fjármál og sér um bókhald, launavinnslu og skattskil. Við vinnum samkvæmt gildandi lögum og reglum og förum með öll gögn sem trúnaðarmál.

Hvers vegna Auðborg
Traustur aðili sem sér um bókhaldið og fjármálin
- Fastur tengiliður
- Þú talar alltaf við sömu manneskju og þarft ekki að útskýra reksturinn aftur.
- Skil á réttum tíma
- Við höldum utan um skilafresti, til dæmis vegna virðisaukaskatts og staðgreiðslu.
- Skýrt yfirlit
- Þú færð reglulega að vita hvernig reksturinn stendur og við útskýrum það sem er óljóst.
Þjónusta
Það sem við tökum að okkur
Bókhald
Færsla fylgiskjala, afstemmingar og mánaðarlegt uppgjör.
Launavinnsla
Launaútreikningur, launaseðlar og skil til lífeyrissjóða og stéttarfélaga.
Virðisaukaskattur
Uppgjör og skil á hverju tímabili ásamt eftirliti með inn- og útskatti.
Ársreikningar
Uppgjör ársins, ársreikningur og skil til ársreikningaskrár.
Skattframtal
Framtal lögaðila og einstaklinga í rekstri.
Ráðgjöf
Rekstraráætlanir, greiðsluflæði og aðstoð við val á bókhaldskerfi.
Um okkur
Fagleg fjármálastjórn
Auðborg veitir öllum tegundum fyrirtækja persónulega þjónustu í fjármálastjórn, bókhaldi, launavinnslu og ráðgjöf.
Þegar spurningar vakna getur þú hringt eða sent tölvupóst og færð svar frá þeim sem sér um bókhaldið þitt.
Bókhaldið þarf ekki að vera í röð og reglu þegar þú kemur til okkar. Við förum yfir stöðuna með þér og komum því í lag. Eftir það sjáum við um það áfram.

Þekking og reynsla
Að baki Auðborg ehf. stendur Vilborg Ásgeirsdóttir, rekstrarfræðingur frá Háskólanum í Reykjavík, með yfir 25 ára reynslu af bókhaldi, launamálum og fjármálastjórnun.
Vilborg hefur gegnt stjórnunarstöðum hjá meðal annars ADVEL lögmönnum, IÐUNNI fræðslusetri og LOGOS lögmannsþjónustu, þar sem hún bar ábyrgð á launavinnslu, bókhaldi, fjárhagsstjórnun og innleiðingu upplýsingakerfa.
Reynslan nær til fyrirtækja af ólíkri stærð og í ólíkum rekstri, þar sem kröfur um nákvæmni og trúnað eru miklar.

Hafa samband
Segðu okkur frá rekstrinum
Sendu okkur línu og við svörum innan tveggja virkra daga. Fyrsta samtalið kostar ekkert.